5.12.2008 | 10:25
.. en orðstír deyr aldrei hveim sér góðan getur
Það má vera að Rúnar sé kominn á annað tilvistarstig en hann er ekki dáinn. Hann mun lifa með þessari þjóð meðan söngvar hans eru sungnir og í hjörtum þeirra sem hann þekktu. Þeir minnast góðs drengs þegar nafn hans er nefnt. Blessuð sé minning hans.
iddaRúnar Júlíusson látinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2008 | 15:00
Við þurfum enga kverúlanta til að eyðileggja málstaðinn
Þeir sem standa að borgarfundum í Háskólabíó og á Austurvelli hafa lagt sig í lima við það að halda utan við öllum stjórnmálaflokkum. Það er mjög brýnt að komið sé í veg fyrir að einstakir menn noti þessa grasrótarhreyfingu til að upphefja sjálfa sig. Ástþór hefur aldrei nokkurn tíma haft áhuga á einu né neinu nema að hann sjái í því ábatavon fyrir sjálfan sig. Haldið áfram að bera manninn út. Ég ætla ekki að kalla hann fífl - hann hefur alla vega verið nógu klár í þessum sýndarleik sínum að græða á tá og fingri.
Kv.
Idda
Ósáttur við brottvísun af fundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 14:50
Kannski var hann bara að bulla
Hefur Ágúst ekki hugleitt þann möguleika að þetta hafi bara verið bull og gaspur í kallinum? Að hann hafi verið að reyna að snúa sér úr snörunni með því að gefa í skyn að það hafi gengið á ýmsu sem fólk viti ekki um og að það geti því ekki dæmt hann vegna þess að það hafi bara hálfa söguna. Þessi ræða hans á dögunum lyktaði öll af svona hvítþvotti. Hann t.d. mörgum orðum um viðvaranir í febrúar vegna þennslu en þegar þær eru skoðaðar kemur í ljós að hann er að skamma almenning fyrir leikfangakaup.
kv.
Idda
Kom á óvart að Davíð upplýsti ekkert | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2008 | 10:59
Aðgát í nærveru sálar
Allt atferli Davíðs undanfarið er með ólíkindum. Reyndar svo að ég er farin að efast alvarlega um geðheilsu mannsins. Hann virðist algerlega blindur á alla sína galla og er augsýnilega haldin vænisýki á háu stigi. Draga verður stórlega í efa andlegt jafnvægi hans. Það er ábyrgðarhluti gagnvart þjóðinni en ekki síst manninum sjálfum að láta þennan persónuharmleik halda áfram með þessum hætti. Geir gerðu okkur öllum greiða, þjóðinni og Davíð, gefðu þessum manni frí. Ef Davíð telur sig þurfa að hreinsa orðspor sitt þá getur hann alltaf reynt fyrir sér í stjórnmálum aftur og þannig lagt verk sín fyrir þjóðina en þessi farsi er búinn að ganga langt útfyrir öll velsæmis mörk. Mér finnst dapurt ef þetta á eftir að verða eftirskrift þessa litríka stjórnmálamanns.
idda
Davíð ber fyrir sig bankaleynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2008 | 17:36
Vanvitar sem stjórna okkur
Hvað í fjandanum ætli þessi maður, nýskriðinn úr skóla og keyptur inn í stjórnmál af Engeyjarættinnni viti um alþjóðastjórnmál! Ef hann getur reimað skóna án hjálpar á hann rétt á atvinnuleysisbótum.
kv.
Idda
Ísland ekki einangrað til frambúðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2008 | 17:29
GOTT MÁL
Berjumst áfram gegn þessu liði sem vill gera almenninga landsins að séreign sinni. Höfum við ekki fengið upp í kok af kvótakerfinu og kvóteigendum. Sú staðreynd að þú megir beita skjátum þínum á eitthvert land þýðir ekki að þú eigir jarðhitan þar enda landið ekki þitt.
kv.
Idda odds
Norðurhlíðar Ytra-Hágangs eru þjóðlendur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2008 | 15:11
Hvað með hátekjumenn???
Hvað með þennan hátekjuaðal sem hefur komist upp með að borga aðeins 10% skatt á meðan við hin borgum 35%? Er lag núna að fara að láta þessar liðleskjur og afætur fara að borga heim? Þetta er fólkið sem á undanförnum árum hefur fengið ívílanir og skattlækkanir. Meira segja lækkuðuð þið skatta á lúxuskerrur þeirra og núverandi ríkistjórn sá ástæðu til að endurgreiða þeim skatta og skyldur af lúxuskerrunum þegar þeir selja þær úr landi. Það er mörg matarholan hér Björgvin minn, bara ef þú tekur hausinn upp úr vösum venjulegs launafólks og ferð að líta í kringum þig.
kv.
Idda
Forðast ber skattahækkanir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2008 | 15:07
Burt með þennan mann
Hvernig stendur á því að maður sem hefur stuðning 5% þjóðarinnar telur sig hafa eitthvað umboð eða rétt til að stýra breytingum. Hvers vegna gerir þessi maður sem er svona gersamlega rúinn trausti ekki það eina ærlega í stöðunni að víkja og hleypa einhverjum sem þjóðin treystir. Hann er sannarlega ekki ómissandi í endurbyggingunni (þeir sem eru góðir í að brjóta niður eru ekki endilega góðir í að byggja upp. En svarið er einfallt: Þetta er gerspilltur eiginhagsmunaseggur sem mun halda í kjötkatlanna unst yfir lýkur.
Kv.
Idda
Þarf að stilla mótmælum í hóf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2008 | 22:45
Hvítþvottur
Þetta er sá daprast hvítþvottur sem ég hef lengi lesið. Orsök kreppunnar er eitthvert heilamein þjóðar sem heldur að hún beri ekki ábyrgð. Kemur þetta ekki úr hörðustu átt. Nei, ég var þess fullviss að ég bæri ekki ábyrgð á braski þessara prinsa sem m.a. Ingibjörg Sólrún og samfylkingin veittur hér skálkaskjól til þessa að fara rænandi og ruplandi. Þegar upp er staðið er það einmitt ég sem er látinn bera ábyrgð. Ekki hún, ekki þeir. En grátlegra er svo settningin um að einhver evrópusjóður geti svo bjargað okkur út úr þessari skuld. Er manneskjan ekki komin í hring. Hver var að tala um sérreglur. Ingibjörg, gerðu okkur einn greiða - FARÐU og taktu geir og hans hyski með þér.
Kv.
Idda
Óvarlega talað í upphafi bankakreppunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2008 | 18:20
Verðum við ekki að fara að kenna Ingibjörgu tölfræði
VG stærsti flokkurinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2008 | 10:34
Auðvitað eru norðmenn frábærir....
Eru Íslendingar að uppgötva þetta fyrst núna? Idda verður nú samt að viðurkenna að eitthvað hafa norsku genin runnið til í honum Geir. Hann er of dæmigerður íslenskur spillingarpúki fyrir hennar smekk.
Kv.
Idda
Íslendingar muna vinargreiða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.12.2008 | 10:24
Sönn hetja
Hörður hefur farið fram í þesum mótmælim af óeigingjarnri festu og einurð. Hann hefur verið knúinn áfram (eins og svo oft áður) af réttlátri reiði. Það er ekki hægt annað en að hrífast með þessum manni. Einn slíkur maður er þessari þjóð meiri virði en mörg bílhlöss af þessum gerspiltu þing- og stjórnmálamönnum sem við eigum. Spillingin er svo alger að þeir eru hættir að sjá það sjálfir. Ég er t.d. viss um að allir samfylkingarþingmenn hafi verið Því samþykkir að Ingibjörg skipaði bestu vinkonu sína í eitt æðsta embætti utanríkisþjónustunnar. Þau sáu bara ekkert athugavert við þetta. Það er þessi algera spilling sem hefur komið okkur í þá stöðu sem við erum í. Það er gegn þessu sem Hörður er að rísa upp og hríf okkur hin með. Það sem er frábærasta við Hörð er að í sinni baráttu kemur hann framm sem manneskja fyrst og síðast.Ég gæti best trúað að hann sé af norsku bergi brotinn alla vega að 1/4.
Áfram Hörðu!
Kv.
Idda
Hörður óvenjuleg byltingarhetja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.11.2008 | 01:17
Idda mælir með ....
29.11.2008 | 23:44
Vonandi finnst hann
Rjúpnaskyttu leitað í fimbulkulda í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2008 | 21:58
Stöndum vörð!
Áhrif kreppunar á umhverfismál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2008 | 21:51
Þar skeit beljan sem ekkert hafði rassgatið...!!
Er hrokonum engum takmörk sett! Það má vera að Geir hafi traust þingmann en hvorki hann né þeir hafa traust þjóðarinnar. Hann telur mikilvægari einhver handaupprétting 63 hugleysingja og amlóða en vilji þjóðarinnar sem margsinnis hefur birtis í skoðannakönnunm. 60% vill kosningar 70% eru á móti ríkistjórninni!!
Kv. Idda
Geir: Tel mig ekki persónulega ábyrgan | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2008 | 08:57
Glæpalýður fer ránshendi um eigur almennings
Viðskiptaráðherra, fjármálaráðherra og fjármálaeftirlitið sofa djúpum svefni . Seðlabankastjóri upptekinn við að máta nýja Napólían búninginn sem alþingi gaf honum í jólagjöf í nótt - "business as usual" í Lególandi.
Berum þá út 1. des.
Idda
Selja á TM sem ríkiseign | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2008 | 19:49
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Nú verða allir Íslendingar sem unna hag þessarar þjóðar og framtíð barna hennar að rísa upp og stöðva spillinguna. Stjórnarherrar eru svo óforskammaðir að ætla að sitja sem fastast þvert ofan í vilja þjóðarinnar. Viðskiptaráðherra gaf út heilbrigðisvottorð á allt pakkið fram að 1. nóv. næsta ár. Enginn á að taka ábyrgð fyrr en hvítþvottarrannsókn þeirra sjálfra á sjálfum sér er lokið. Skipið er strand, skipstjórinn, stýrirmaðurinn og vélstjórinn voru á kojufylliríi. Ekki má taka úr þeim blóðprufu til að sanna fylliríið fyrr en eftir ár - þau eru nefnilega að bjarga bátnum.
ALLAR AÐGERÐIR ÞESSARAR RÍKISTJÓRNAR FRÁ HRUNINU HAFA MIÐAÐ VIÐ AÐ BJARGA AUÐMÖNNUM OG ÞEIRRA EIGNUM Á KOSTNAÐ ALMENNINGS. EIGNARRÉTTUR ÞEIRRA ER HEILAGUR EN EIGNIR OKKAR MEIGA FUÐRA UPP Á VERÐBÓLGUBÁLINU NÆSTU MÁNUÐI. VIÐ FÁUM GREIÐSLUFREST SEM Í STUTTU MÁLI ÞÝÐIR "LENGING Á HENGINGARÓLINN". AFMÁUM ÓSÓMANN!!
KV.
IDDA
Íslendingar boðaðir á þjóðfund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2008 | 12:45
Akademískt frelsi
HR ætti að fara varlega með alla ritskoðun. Málfrelsi er hornsteinn akademísks frelsis. Held að þessi háskóli eigi í nógu miklum vanda með ímynd sína í dag eftir að hafa migið utan í fjármálageirann undanfarin ár. Það dregur alltaf úr trúverðugleika háskóla þegar þeir eru ekki fjárhagslega sjálfstæðir. Alltaf verður að spyrja hvort niðurstöður rannsókna í slíkri stofnun séu keyptar af fjármögnunaraðilum.
Kv.
Idda
Ræða Katrínar ekki tekin út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.11.2008 | 01:17
Skrítin lögfræði í HR
Hefur þetta fólk aldrei heyrt um varnarétt almennings. Réttinn til að rísa gegn óréttlætum sjórnvöldum sem reyndar var gerður að skyldu í dauðadómum yfir nasistu. Er ekki kominn tími til að þessi litlu íhöld geri sér grein fyrir þjóðfélagslegum raunveruleika. Þegar stjórnvöld fara yfir rammann kemur að andófi almennings. Þegar einhver ætlar að ræna mig ævistarfinu á ég rétt á að bera hönd yfir höfði mér. Ég er ekki þræll þó þið séuð rosalega flott íhöld.
Kv.
Idda
Ps. Ef þetta lið fengi að ráða væri Nelson Mandela enn í fangelsi.
Óánægð með ræðu á heimasíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |