27.11.2008 | 19:49
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Nú verða allir Íslendingar sem unna hag þessarar þjóðar og framtíð barna hennar að rísa upp og stöðva spillinguna. Stjórnarherrar eru svo óforskammaðir að ætla að sitja sem fastast þvert ofan í vilja þjóðarinnar. Viðskiptaráðherra gaf út heilbrigðisvottorð á allt pakkið fram að 1. nóv. næsta ár. Enginn á að taka ábyrgð fyrr en hvítþvottarrannsókn þeirra sjálfra á sjálfum sér er lokið. Skipið er strand, skipstjórinn, stýrirmaðurinn og vélstjórinn voru á kojufylliríi. Ekki má taka úr þeim blóðprufu til að sanna fylliríið fyrr en eftir ár - þau eru nefnilega að bjarga bátnum.
ALLAR AÐGERÐIR ÞESSARAR RÍKISTJÓRNAR FRÁ HRUNINU HAFA MIÐAÐ VIÐ AÐ BJARGA AUÐMÖNNUM OG ÞEIRRA EIGNUM Á KOSTNAÐ ALMENNINGS. EIGNARRÉTTUR ÞEIRRA ER HEILAGUR EN EIGNIR OKKAR MEIGA FUÐRA UPP Á VERÐBÓLGUBÁLINU NÆSTU MÁNUÐI. VIÐ FÁUM GREIÐSLUFREST SEM Í STUTTU MÁLI ÞÝÐIR "LENGING Á HENGINGARÓLINN". AFMÁUM ÓSÓMANN!!
KV.
IDDA
Íslendingar boðaðir á þjóðfund | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkar: Bloggar, Dægurmál, Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Heyr heyr
Æsir (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 20:00
Það er til deild sem heitir útlendingaherdeildin.
j.a. (IP-tala skráð) 27.11.2008 kl. 20:33
Ég hefði aldrei trúað að ég ætti eftir að upplifa byltingu á Íslandi, en ástandið er farið að verða ansi ískyggilegt.
Villi Asgeirsson, 27.11.2008 kl. 20:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.