Idda biður Ólaf Ragnar Grímsson afsökunar

last-gazette-king-haraldIdda biður Ólaf Ragnar Grímsson innilegrar afsökunar!

Idda hefur alltaf verið stolt af uppruna sínum. Það hefur reyndar verið erfitt stundum að viðurkenna hinar norsku rætur, sérstaklega þegar hún Siv og hann Geir hafa verið að klúðra málum. Svo ekki sé talað um hana Valgerði (sem er reyndar ekki norsk en samt næstum því þar sem hún á norskan mann).

En núna skammast Idda sín fyrir að vera af norskum rótum. Idda var alin upp í þeirri hugsjón að við værum öll jöfn fyrir guði. Sú staðreynd að hann Ólafur og hún Dorit okkar sé í kothús vísað fyrir það eitt að í æðum Ólafs renni rautt allaballa blóð en ekki hert blá íhaldsfita er óásættanleg.

Lengi lifi Ólafur! Niður með norska snobbið!!! - Idda 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ertu alveg snar?

snorrikr (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 17:15

2 Smámynd: Idda Odds

Jamm, alveg rosalega snar eða var það snör?

Idda Odds, 18.2.2007 kl. 19:26

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Blóðið í Óla hefur nú orðið svolítið fjólublátt með árunum. Spurðu vini hans þá Abramovich og Bill Gates.   

Jón Steinar Ragnarsson, 19.2.2007 kl. 19:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband